ÚTBOÐ - Borgarholtsskóli við Mosaveg – Málun á þökum
Örútboð nr. 207, innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnaðarmanna
Ríkiseignir óska eftir málarameisturum til að taka þátt í örútboði vegna málunar á þökum á Borgarholtsskóla við Mosaveg. Verkið felst í málun þaka. Helstu magntölur eru:
Málun þaka á bíl- og málmgreinahúsi .................................................. 3.430.... m2
Málun þaka á bóknámshúsi ................................................................. 2.660.... m2
Þeir sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á gudni.orn@simnet.is fyrir kl. 14.00 föstudaginn 24.apríl 2017.