ÚTBOÐ - Menntaskólinn við Hamrahlíð – þjónustusamningur um raflagnir
Örútboð nr. 194, rammasamningur 15721 – Þjónusta iðnaðarmanna
Ríkiseignir óska eftir rafvirkjum til að taka þátt í örútboði vegna Þjónustusamnings um endurbætur og viðhald raflagna í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Verkefnið fellst í almennu viðhaldi á raflögnum, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.
Gefa skal verð í hverja klukkustund með vsk. 700 tíma í dagvinnu og 100 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð með vsk. í 50 ferðir í akstur innanbæjar vegna efniskaupa.
Þeir sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@ríkiseignir.is fyrir kl. 14.00 föstudaginn 7. október 2016.