ÚTBOÐ – Listaháskóli Íslands, Árleynir 2 og Árleynir 22 – þjónustusamningur um trésmíði

Örútboð nr. 247 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnmeistara

Ríkiseignir óska eftir trésmiðum til að taka þátt í örútboði vegna þjónustusamnings um endurbætur og viðhald í Listaháskóla Íslands (Lauganesvegi 91), Árleyni 2 og Árleyni 22. Verkefnið felst í almennu trésmíðaviðhaldi, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.

Gefa skal verð í 2000 tíma í dagvinnu og 200 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 150 ferðir vegna efnisöflunar og útkalla. 

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík,  þriðjudaginn 3. apríl 2018 kl. 14.00.