ÚTBOÐ – Menntaskólinn við Sund og Fjölbrautaskólinn í Breiðholti – þjónustusamningur um pípulagnir

Örútboð nr. 232 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnaðarmanna

Ríkiseignir óska eftir pípulagningarmönnum til að taka þátt  í  örútboði vegna Þjónustusamnings um endurbætur og viðhald pípulagna í Menntaskólanum við Sund og Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Verkefnið felst í almennu viðhaldi pípulagna, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.

Gefa skal verð í 800 tíma í dagvinnu og 80 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 60 ferðir vegna efnisöflunar. 

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, þriðjudaginn 21. nóvember 2017 kl. 14.00.