ÚTBOÐ – Verkmenntaskólinn á Akureyri, Hafnarstræti 99-101 og Hafnarstræti 107 á Akureyri – þjónustusamningur - Aðalverktaka

Örútboð nr. 257 innan rammasamnings 15721 – þjónusta iðnmeistara 107 á

Ríkiseignir óska eftir aðalverktökum til að taka þátt í örútboði vegna þjónustusamnings um endurbætur og viðhald í Verkmenntaskólanum á Akureyri, Hafnarstræti 99-101 og Hafnarstræti 107 á Akureyri. Verkefnið felst í almennu viðhaldi, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma. Þær iðngreinar sem útboðið nær yfir eru trésmíði, rafvirkjun, pípulagning og málun.

Gefa skal verð í tímagjald í dagvinnu og yfirvinnu fyrir hverja iðngrein. Einnig skal gefa verð í akstursferðir vegna efnisöflunar og útkalla. Áætlaður fjöldi tíma og akstursferða á samningstímanum (2 ár) er:

Iðngrein

DV

YV

Akstur

Trésmíði

900

90

60

Rafvirkjun

700

70

50

Pípulagnir

250

25

20

Málun

500

50

40

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík,  miðvikudaginn 28. nóvember 2018 kl. 14.00.