• Geysir

Hugmyndasamkeppni um skipulag og hönnun Geysissvæðisins í Haukadal

Skilafrestur er 30. janúar 2014

GeysirAuglýst hefur verið hugmyndasamkeppni um skipulag og hönnun Geysissvæðisins í Haukadal. Markmið samkeppninnar er að fá fram hugmyndir um skipulag og uppbyggingu svæðisins. Geysir er einstakt náttúrufyrirbæri og frægasti goshver heims og er hverasvæðið einn fjölsóttasti ferðamannastaður á Íslandi. 

Áhersla er lögð á raunhæfar og spennandi tillögur um heildarlausn á aðgengi hverasvæðisins og tengingu við nánasta umhverfi. Tillögur skulu bera með sér vandað og fallegt heildaryfirbragð sem fellur vel að umhverfinu og taki mið af helstu sérkennum svæðisins. 

Þrenn verðlaun verða veitt að heildarfjárhæð 8 milljónir króna. 
Framkvæmdasjóður Ferðamannastaða veitti sveitarfélaginu Bláskógabyggð styrk til að halda samkeppnina. Undirbúningsnefnd vann að mótun lýsingar og dómnefnd vann síðan keppnisgögn. 

Samkeppnin fer fram í samvinnu við Arkitektafélag Íslands. Bláskógabyggð, Landeigendafélag Geysis ehf., ríkið, Arkitektafélag Íslands og Félag Landslagsarkitekta eiga fulltrúa í dómnefndinni og hefur samstarfið verið mjög gefandi og skemmtilegt

Verkefniskynning