Byggðastofnun: Rósa Gísladóttir sigrar samkeppni um listskreytingu

Samkeppni um listskreytingu í nýbyggingu Byggðastofnunar er lokið. Dómnefnd valdi verk Rósu Gísladóttur, Eldflaugin og demanturinn sigurvegara. Í umsögn dómnefndar segir: 

Eldflaugin og Demanturinn eru áhrifarík og fagurfræðilega áhugaverð í rýminu Hugmyndin er heildstæð og tengist starfsemi Byggðastofnunar með skemmtilegri vísun í ferðalag og framþróun sem Eldflaugin táknar og áfangastað slíks ferðalags sem demanturinn táknar Verkin eru þrívíð og fjörug og taka á móti þeim sem inn í rýmið koma með form og litagleði Þau vekja áhuga, athygli og forvitni. 

 

Dómnefnd skipuðu eftirtaldir aðilar:

  • Árni Ragnarsson, arkitekt, tilnefndur af Byggðastofnun, formaður dómnefndar, 
  • Ásdís Spanó myndlistarmaður, tilnefnd af SÍM, 
  • Baldur Ó Svavarsson, arkitekt nýbyggingar Byggðastofnunar, tilnefndur af Byggðastofnun. 
  • Ritari dómnefndar og verkefnastjóri var Sunna Dóra Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri hjá Framkvæmdasýslu ríkisins. 

Umsögn dómnefndar má sjá í meðfylgjandi skjali: