Íbúðarhúsnæði til kaups eða leigu á Austurlandi

Óskað er eftir allt að fjórum eignum, þ.e. tveimur íbúðum á Egilsstöðum og tveimur íbúðum í Neskaupstað.

Leitað er eftir 2ja til 4ra herbergja íbúðarhúsnæði, einkum nýlegu eða viðhaldslitlu húsnæði í góðu ástandi. Til greina koma bæði íbúðir og/eða minni sérbýli. Kostur er ef íbúðarhúsnæðið er í þéttbýliskjarna með góðu aðgengi.

Við mat á hagkvæmni tilboða verður m.a. tekið tillit til leiguverðs íbúðarhúsnæðisins, kaupverðs, ástands, stærð þess og skipulag, afhendingatíma, staðsetningu, aðkomu og bílastæðum. Aðeins er um markaðskönnun að ræða og áskilinn réttur til að hafna öllum tilboðum.

Fyrirspurnir varðandi verkefnið Heilbrigðisstofnun Austurlands skulu sendar á netfangið leiguhusnaedi@fsre.is.

Fyrirspurnarfrestur rennur út 31. október 2022 en svarfrestur FSRE er til og með 3. nóvember 2022.

Leigutilboð eða sölutilboð skal senda á leiguhusnaedi@fsre.is, eigi síðar en kl. 13:00 fimmtudaginn 24. nóvember 2022.

Merkja skal tilboðin; nr. 221029Heilbrigðisstofnun Austurlands - Íbúðarhúsnæði.

 

Útboðsnúmer: 221029

Fyrirspurnarfrestur: 3.11.2022

Opnun tilboða: 24.11.2022