Markaðskönnun - Húsnæði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd - Leiguhúsnæði

Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir f.h. ríkissjóðs óska eftir að taka á leigu húsnæði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd.

Miðað er við að húsnæðið verði tekið á leigu, tímabundið til allt að 2-5 ára auk mögulegrar framlengingar til 2-3 ára. Húsnæðið skal vera skráð í notkunarflokk 4 (gistirými) skv. byggingarreglugerð. Hægt er að bjóða húsnæði í þremur flokkum:

A) Gistiheimili fyrir 30-50 íbúa, leigutími allt að 2 ár.
B) Gistiheimili fyrir 51-100 íbúa, leigutími allt að 3 ár.
C) Gistiheimili fyrir fleiri en 100 íbúa, leigutími allt að 5 ár.

Gott aðgengi skal vera fyrir hreyfihamlaða, hjólandi og gangandi. Kostur er að húsnæðið sé í göngufæri við almenningssamgöngur, verslun og þjónustu.

Húsnæðið skal afhendast fullbúið og tilbúið til notkunar innan 12 mánaða frá undirritun leigusamnings.

Kröfur til húsnæðisins má sjá hér:  Markadskonnun-fyrir-umsaekjendur-um-althjodlega-vernd-Huslysing

Við mat á hagkvæmni tilboða verður m.a. tekið tillit til leiguverðs, stærðar húss og skipulags þess út frá fyrirhugaðri nýtingu, öryggis, afhendingartíma, staðsetningu, aðkomu, fjölda einstaklinga sem komast fyrir í húsnæðinu og nálægð við þjónustuskrifstofur Vinnumálastofnunar víðs vegar um landið, sem hafa eftirlit með starfseminni.

Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla verða aðgengilegar á
www.utbodsvefur.is þriðjudaginn 2. maí 2023.

Fyrirspurnir varðandi verkefnið Húsnæði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd skulu sendar á netfangið leiguhusnaedi@fsre.is.

Fyrirspurnarfrestur rennur út 8. maí 2023 en svarfrestur er til og með 9. maí 2023.
Leigutilboð skal senda á leiguhusnaedi@fsre.is, eigi síðar en kl. 13:00 fimmtudaginn 11. maí 2023.

Merkja skal tilboðin; nr. 230419 – Húsnæði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd - Leiguhúsnæði

Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin lögum um opinber innkaup nr. 120/2016, sbr. a. lið 1. mgr. 11. gr.

Útboðsnúmer: 230419

Fyrirspurnarfrestur: 08.05.2023

Opnun tilboða: 11.5.2023