Markaðskönnun - Pípulagningadeild í Borgarholtsskóla - Leiguhúsnæði

Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir f.h. ríkissjóðs óska eftir að taka á leigu húsnæði fyrir pípulagningadeild í Borgarholtsskóla.


Miðað er við að húsnæðið verði tekið á leigu í 5 ár með möguleika á framlengingu í 2–3 ár í viðbót. Gerð er krafa um staðsetningu húsnæðis innan Grafarvogs og að það verði helst í göngufæri við aðalbyggingu skólans.


Húsnæðið skal afhendast fullbúið og tilbúið til notkunar í síðasta lagi 15. ágúst 2023.

Kröfur til húsnæðisins má sjá hér: Borgarholtsskoli-Huslysing-og-tharfagreining


Heildarstærð húsnæðis, brúttó, er áætluð 500–520 fermetrar. Nánar um stærðir rýma og aðrar kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla verða aðgengilegar á www.utbodsvefur.is þriðjudaginn 30. maí 2023.


Gott aðgengi skal vera fyrir hreyfihamlaða, hjólandi og gangandi.


Við mat á hagkvæmni tilboða verður m.a. tekið tillit til leiguverðs, stærðar húsnæðis og skipulags þess út frá fyrirhugaðri nýtingu, öryggis, afhendingartíma, staðsetningu og aðkomu.


Fyrirspurnir varðandi verkefnið Pípulagningadeild í Borgarholtsskóla, skulu sendar á netfangið leiguhusnaedi@fsre.is.


Fyrirspurnarfrestur rennur út 1. júní 2023 en svarfrestur er til og með 2. júní 2023.


Leigutilboð skal senda á leiguhusnaedi@fsre.is, eigi síðar en kl. 13:00 föstudaginn 9. júní 2023.


Merkja skal tilboðin; nr. 230525 – Pípulagningadeild í Borgarholtsskóla – Leiguhúsnæði.


Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin lögum um opinber innkaup nr. 120/2016, sbr. a. lið 1. mgr. 11. gr.

Útboðsnúmer: 230525

Fyrirspurnarfrestur: 02.06.2023

Opnun tilboða: 9.6.2023