Geislavarnir ríkisins - Leiguhúsnæði

Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir f.h. ríkissjóðs óska eftir að taka á leigu húsnæði fyrir starfsemi Geislavarna ríkisins. Miðað er við 15 ára leigutíma, húsnæði fullbúið til notkunar án lauss búnaðar.

Gerð er krafa um staðsetningu á höfuðborgarsvæðinu. Það skal vera gott aðgengi þ.m.t. fyrir hreyfihamlaða, hjólandi, gangandi, flutningabíla og næg bílastæði.

Húsrýmisþörf er áætluð um 765 fermetrar þ.a. 225 fermetra fyrir hefðbundna skrif-stofustarfsemi og um 540 fermetra fyrir sértæk rými.

Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla verða aðgengilegar á www.utbodsvefur.is mánudaginn 3. júlí 2023.

Við mat á hagkvæmni tilboða verður m.a. tekið tillit til leiguverðs, stærð húss og skipulags þess út frá fyrirhugaðri starfsemi, öryggis, afhendingartíma, staðsetningu, aðkomu og bílastæðum.

Fyrirspurnir varðandi verkefni Geislavarnir ríkisins - leiguhúsnæði skulu sendar á netfangið leiguhusnaedi@fsre.is .

Fyrirspurnarfrestur rennur út mánudaginn 10. júlí en svarfrestur er til og með fimmtudagsins 13. júlí.

Leigutilboðum skal senda á leiguhusnaedi@fsre.is eigi síðar en kl. 13:00 fimmtudaginn 20. júlí 2023.

Merkja skal tilboðin; nr. 221108 - Geislavarnir ríkisins – Leiguhúsnæði.

Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin lögum um opinber innkaup nr. 120/2016, sbr. a. lið 1. mgr. 11. gr.Meginmál

Útboðsnúmer: 221108

Fyrirspurnarfrestur: 10.07.2023

Opnun tilboða: 3.7.2023