Markaðskönnun - Rekstrartækifæri vegna ferðaþjónustu innan Austmannsdals

FSRE f.h. Ríkissjóðs Íslands óska eftir að leigja út landsvæði innan Austmannsdals, Vesturbyggð. Atvinnustarfsemin skal tengjast ferðaþjónustu og vera aðdráttarafl fyrir svæðið í heild sinni.

Afmörkun verkefnis 

Áformað er að leigja út allt að 15 ha landsvæði innan Austmannsdals. Í dag er ríkisjörðin Austmannsdalur L140433, 428 ha, en gert er ráð fyrir að leigusamningurinn nái yfir u.þ.b. 15 ha svæði og mun verða stofnuð leigulóð úr ríkisjörðinni samhliða skipulagsvinnu sem verður á kostnað framkvæmdaraðila.   

Markmiðið er að koma svæðinu í viðeigandi virkni og finna starfsemi sem fellur vel að þeirri ferðaþjónustu sem fyrir er á nærliggjandi svæðum ásamt því að auka aðdráttarafl svæðisins í heild sinni. 

Með því að auglýsa svæðið er markmiðið að tryggja að samkeppni geti orðið um úthlutun á nýtingu landsins og uppbyggingu innviða á svæðinu undir ferðaþjónustu.  Með því að auglýsa er einnig verið að gæta þess að unnið verði að faglegri áætlanagerð við nýtingu lands. Um er að ræða leigu á landi í eigu ríkisins og með því er tryggt að eðlilegt endurgjald komi fyrir nýtinguna á landinu. Með leigusamningi á umræddu landsvæði er verið að auka fjárfestingar í innviðum, m.a. til að tryggja öryggi og upplifun gesta og krefst það nauðsynlegrar aðstöðuuppbyggingar. Þar sem ekki er um að ræða kjarnaverkefni á vegum hins opinbera er með auglýsingu þessari verið að stuðla að útvistun á þjónustu og uppbyggingu.  

Leigutími fyrir hluta svæðisins verði að lágmarki til 10 ára (skv. 1. mgr. 34. gr. jarðalaga nr. 81/2004) með forleigurétt. Miðað er við að gerður verði lóðarleigusamningur til 50 ára um allt að 5 ha land sem ætlað er undir mannvirki, sem tengist nýtingu landsins og fyrirhugaðri starfsemi.  

Ekki er gert ráð fyrir auðlindanýtingu s.s. malarnámi né að svæðið verði leigt undir beit.   

Óskað er eftir greinargóðri lýsingu (s.s. viðskiptaáætlun) á tillögu fyrir þá starfsemi sem fyrirhuguð yrði á svæðinu.  

Miðað er við að leiguverð verði í samræmi við reglur um afgjöld fyrir afnot af landi í eigu ríkissjóðs

Um markaðskönnun er að ræða og áskilinn er réttur til að fallast á tillögu eða hafna öllum tillögum.  

Skipulagsleg staða  

Svæðið er í gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins skilgreint sem landbúnaðarland. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu. Sveitarfélagið hefur veitt jákvæða umsögn um að breyta aðalskipulagi ef til þess þarf fyrir ferðaþjónustu tengda starfsemi. Breyting á aðalskipulagi er unnin af sveitarfélaginu en deiliskipulag skal unnið af frumkvæði leigutaka í samráði við sveitarfélagið og skal það borið undir FSRE.  

Fylgigögn:

Kort - Austmannsdalur

Matsblað fyrir markaðskönnun - Austmannsdalur

Kröfur og hæfi 

Hið opinbera gerir ríkar kröfur til aðila sem það á í viðskiptasambandi við. Óskað er eftir að áhugasamir aðilar geri grein fyrir hæfi sínu og leggi fram tillögu um starfsemi á svæðinu. Tekin verður afstaða til hugmynda þeirra aðila sem uppfylla neðangreindar hæfiskröfur.  

Lágmarkskröfur til þátttakenda: 

  • Ekki verður gengið til samninga við aðila/þátttakanda sem hefur verið sakfelldur með endanlegum dómi fyrir eftirtalin afbrot. 
  • þátttöku í skipulögðum glæpasamtökum,
  • spillingu,
  • sviksemi,
  • hryðjuverk eða brot sem tengjast hryðjuverkastarfsemi,
  • peningaþvætti eða fjármögnun hryðjuverka,
  • barnaþrælkun eða annars konar mansal.
  • Sama á við þegar einstaklingur, sem hefur verið sakfelldur með endanlegum dómi fyrir brot skv. 1. mgr., er í stjórn, framkvæmdastjórn eða eftirlitsstjórn viðkomandi fyrirtækis eða hefur heimild til fyrirsvars, ákvörðunartöku eða yfirráða í því.
  • Vakin er athygli á því að samningsaðilar hins opinbera skulu vera í skilum með greiðslu opinberra gjalda, lífeyrissjóðsiðgjalda eða annarra laga ákveðinna gjalda ásamt því að uppfylla önnur almenn hæfisskilyrði til að vera í viðskiptasambandi við ríkisaðila. 

Komi til samningsgerðar verður kallað eftir upplýsingum varðandi ofangreint. 

Aðrar kröfur: 

  • Starfsemin sé atvinnuskapandi 
  • Starfsemin skal vera ferðaþjónusta s.s. tjaldstæði, gisting, miðlun sögu svæðisins svo dæmi sé tekið
  • Leigutaki þarf sjálfur að tengjast helstu innviðum (svo sem rafmagn, vatn og fráveita)
  • Jákvætt eigið fé skv. síðasta ársreikning

Viðskiptaáætlun þarf að gera grein fyrir eftirfarandi að lágmarki: 

  • Stutt umfjöllun um fyrirhugaða starfsemi 
  • Heiti verkefnis 
  • Nafn forsvarsmanns, sími og netfang 
  • Megintilgangur verkefnisins 
  • Framkvæmdaáætlun (gera grein fyrir áfangaskiptingu ef við á)
  • Gera þarf grein fyrir hvernig á að nýta húsarústirnar sem eru innan jarðarinnar og hvernig það taki mið af varveislugildi eignarinnar.
  • Umhverfismál starfseminnar, framkvæmdar og annað eins og við á
  • Markaðs- og samkeppnisgreining 
  • Markhópur/viðskiptavinir 
  • Fjárhagsáætlun og markaðsáætlun 

Við mat á tilboðum verður litið til þess hvort viðskiptaáætlun sé sannfærandi, raunhæf og samræmist markmiðum ríkissjóðs fyrir notkun landsins og öðrum kröfum markaðskönnunar þessarar. Lagt verður mat á heildarhugmyndina sem aðdráttarafl fyrir svæðið og með hvaða hætti eigi að nýta landið og þá innviði sem þar eru. 

Birting auglýsingar  

Auglýsing þessi birtist þann 11. janúar 2024. 

Fyrirspurnir varðandi verkefnið Rekstrartækifæri innan Austmannsdals skulu sendar á netfangið fsre@fsre.is.  

Fyrirspurnarfrestur rennur út 22. janúar 2024 en svarfrestur er til og með 24. janúar 2024. 

Tillögur skal senda á fsre @fsre.is, eigi síðar en kl. 13:00 8. febrúar 2024. 

Merkja skal tillögu; Rekstrartækifæri innan Austmannsdals.  

Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin lögum um opinber innkaup nr. 20/2016, sbr.  a. lið 1. mgr. 11. gr. 

Viðbót 5/2/2024

 Lagt er til grundvallar að útreiknuð landleiga verði 253.250 kr. á ári.

Útboðsnúmer: M230123

Fyrirspurnarfrestur: 22.01.2024

Opnun tilboða: 8.2.2024