Markaðskönnun - Svifferja upp Esjuhlíðar

Framkvæmdasýslan –Ríkiseignir („FSRE“) óskar eftir markaðsaðilum til samtals um mögulega aðkomu einkaaðila að lagningu svifferju upp Esjuhlíðar. Um er að ræða land í eigu ríkisins og fer nú fram forathugun þar sem þarfir svæðisins eru greindar og valkostir metnir, í samræmi við lög nr. 100/2021 um nýtingu á landi í eigu ríkisins í atvinnuskyni.

Með markaðskönnun þessari leitast FSRE eftir að afla upplýsinga um áhuga og skoðanir markaðsaðila á mögulegri framkvæmd og útboði sérleyfis.

Frekari upplýsingar má nálgast hér .

Fyrirspurnarfrestur er til og með 8. maí 2024 kl. 15:00 og sendast fyrirspurnir á netfangið esjuferja@deloitte.is

Frestur til að senda inn gögn er til 8. maí 2024 kl. 15:00 og sendist gögn á netfangið esjuferja@deloitte.is

Útboðsnúmer: M23-0081

Fyrirspurnarfrestur: 8.5.2024

Opnun tilboða: 8.5.2024